Fara í efni

DIY dekur fyrir húðina - frá Gunnhildi á Pigment.is

Ég hef verið dugleg að kynna mér öll möguleg húsráð í húðumhirðu og ætla að fara yfir nokkur sem hafa nýst mér vel. Ég hef bæði sankað að mér ráðum af netinu og annarsstaðar, en hér koma þau sem hafa reynst mér best.
DIY dekur fyrir húðina - frá Gunnhildi á Pigment.is

Ég hef verið dugleg að kynna mér öll möguleg húsráð í húðumhirðu og ætla að fara yfir nokkur sem hafa nýst mér vel.

Ég hef bæði sankað að mér ráðum af netinu og annarsstaðar, en hér koma þau sem hafa reynst mér best.

 

 

 

 

Gufubað á andlitið 

Það fyrsta er vel þekkt, en það er gufa. Sjóðið vatn í potti og setjið í skál, leyfið að rjúka aðeins úr því í smástund, setjið andlitið yfir og handklæði/viskustykki ofan á hausinn. Bíðið yfir skálinni í örfáar mínútur og leyfið húðinni að opna sig.

Skrúbbur

Það er hægt að gera margskonar skrúbba heima við en minn uppáhalds er búinn til eftirfarandi: 1-2 msk af ólívuolíu, 1 tsk af haframjöli og 1 tsk mulið Maldon sjávarsalt. Öllu blandað saman og nuddað á húðina. Passa að mylja sjávarsaltið vel ef það á að nota þetta á andlit vegna þess að það getur rispað húðina.Þetta djúphreinsar og fjarlægir dauðar húðfrumur.

Maski/djúphreinsir 

1-2 msk AB mjólk og 1-2 tsk lyftiduft, ekkert flóknara! Nuddað á húðina, leyft að liggja á henni í 2-3 mínútur og hreinsað af. Veit um fátt heimatilbúið sem fjarlægir óhreinindi jafn vel og húðin á manni verður mýkri en allt.


Eggjahvítur . . . LESA MEIRA