Fara í efni

Aníta Hinriksdóttir komin í úrslit á HM

Aníta komin áfram á HM unglinga.
Aníta Hinriksdóttir komin í úrslit á HM

Aníta Hinriksdóttir kom 4. í mark í fyrri riðli undanrásanna á tímanum 2:04.99 mín. Aníta leiddi fyrstu 400m sem voru á 1:00,76 mín. Sahily varð 1. á 2:03,60 mín, Margareth 2:03.72 mín og 3. varð Georgia Griffin á 2:04,00 mín. 8 stúlkur komast áfram í úrslit, 3 fyrstu úr hvorum riðli fara áfram og síðan þær sem hlupu á 2 bestu tímunum þar á eftir. Þar sem að seinni riðillinn vannst á 2:04.62 mín, og sú í 4. sæti hljóp á 2:05.37 mín þá er Aníta örugg inn í úrslitin. Til hamingju Aníta