Fara í efni

Hlaupahópur vikunnar: Hlaupahópur Ármanns

Hlaupahópur Ármanns er fyrsti hópurinn til að kynna sig á Heilsutorg.com
Hlauparhópur Ármanns
Hlauparhópur Ármanns

Nafn hópsins: Hlaupahópur Ármanns

Þjálfari/Þjálfarar: Stefán Guðjónsson

Hvaðan hleypur hópurinn:

Frá frjálsíþróttahöllinni í Laugardal en laugardagsæfingar byrja á ýmsum stöðum um höfuðborgarsvæðið til þess að auka á fjölbreytnina.

Hvaða daga og kl. hvað:

Hlaupahópur Ármanns hittist allt árið um kring þrisvar í viku, yfir sumartímann eru æfingarnar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 og laugardagsmorgna kl. 8:00. Yfir vetrarmánuði eru æfingar í frjálsíþróttahöll Laugardals á þriðjudögum og fimmtudögum og útiæfingar á laugardagsmorgnum.

Er hópurinn fyrir byrjendur og lengra komna

Hlaupahópurinn er öllum opinn og samanstendur af breiðum hóp hlaupara sem allir hafa það að markmiði að stunda íþróttina sér til heilsubótar og ánægju.Í hópnum eru hlauparar á ýmsum getustigum og á öllum aldri sem hafa ólíkan bakgrunn í íþróttinni. Sumir leggja áherslu á maraþonhlaup, aðrir á styttri veglengdir, eins og 5-10 km hlaup, og enn aðrir leggja áherslu á utanvegahlaup, eins og hin árlegu Laugavegs- og Esjuhlaup svo dæmi séu tekin.

Er hópurinn virkur í að taka þátt í hlaupatengdum viðburðum hérlendis og erlendis:

Hópurinn er mjög virkur allt árið um kring og tekur þátt í Powerade vetrarhlaupunum og mörgum hlaupaviðburðum yfir sumartímann hérlendis. Einnig hafa hlauparar úr hlaupahópnum tekið þátt í maraþonum og öðrum hlaupum erlendis og skipulagt skemmtilegar hópferðir í kringum þá viðburði.

Heldur hópurinn sín eigin hlaup:

Hlaupahópur Ármanns skipuleggur Mt. Esja Ultra hlaupið sem var haldið 22. júní í ár og í samstarfi við Ármann kemur hlaupahópurinn við sögu við skipulagningu og framkvæmd Ármannshlaupsins og Miðnæturhlaups Suzuki.

Er félagslíf hjá hópnum utan við venjulegar hlaupaæfingar og hvað þá helst:

Félagslífið í hópnum er mjög gott og haldin er árshátíð árlega og aðrir viðburðir til þess að sameina hópinn og efla andann.

Heldur hópurinn úti vefsíðu og hver er slóðin:

Hlaupahópurinn er ekki með heimasíðu en við erum með facebook síðu.

Að lokum:

Hlaupahópur Ármanns hvetur byrjendur sem lengra komna til þess að ganga til liðs við skemmtilegan hlaupahóp.

Fyrirspurnir um nánari upplýsingar má senda á netfangið hlaupahopur@armannfrjalsar.com