Fara í efni

Til hamingju Aníta!

Frjálsíþróttamót Reykjavík International Games fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í gær í mögnuðu andrúmslofti.
Aníta hlaupadrottning
Aníta hlaupadrottning

Frjálsíþróttamót Reykjavík International Games fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í gær í mögnuðu andrúmslofti.  

Spennan fór stigvaxandi og náði síðan hæstu hæðum þegar Aníta Hinriksdóttir úr ÍR fór á ráslínuna fyrir 800 m hlaupið. Þar mætti hún tveimur fótfráum  hlaupurum, Rose-Anne Galligan frá Írlandi og Alinu Krebs frá Þýskalandi.  

Aníta tók forystu strax í upphafi hlaups og hélt hún henni allt til loka undir mikilli hvatningu frá áhorfendum.  

Hún náði að hlaupa á jöfnum hraða allt hlaupið og þegar einn hringur var eftir voru keppinautar hennar ekki með sama styrk og Aníta.  

Síðasta spölinn hljóp hún síðan með bros á vör og kom síðan í mark á nýju Íslandsmeti og nýju Evrópumeti 19 ára og yngri 2:01,81.  

Í viðtali eftir hlaupið sagðist hún vera vel sátt við árangurinn og að sig hlakki mikið til að mæta sterkustu jafnöldrum sínum í heimi á Millrose Games í New York eftir 4 vikur.