Fara í efni

Ertu tilbúin að fara yfir þröskuldinn?

En hvað gerðist einmitt sem var þess valdandi að ég gekk inn fyrir dyrnar og fann sjálfan mig þar? Fékk aðra sýn á málin.
Viltu taka skrefið?
Viltu taka skrefið?

Góðan daginn.

Þessi mynd segir svo margt.
Mér var bent á það þegar að ég var að hrósa aðila sem hefur hjálpað mér svo ótrúlega mikið í þessu ferli að hún hefði bara "opnað" hurðina fyrir mig.
Og ég fór að hugsa.

Voðalega er hún hógvær :)
Búin að hjálpa svona mikið og bara ein lítil hurð.
En hvað gerðist einmitt sem var þess valdandi að ég gekk inn fyrir dyrnar og fann sjálfan mig þar?
Fékk aðra sýn á málin.

Jú ég var tilbúin sjálf!
Það þýðir lítið að ætla gera stóra hluti með hangandi hendi.
Að taka að sér stórt verkefni og ætla bara að skottast inn og út um "gluggann" inn og út um gluggann og alltaf sömu leið :)

Ef að maður ætlar að taka skrefin inn úr þægindarrammanum verður maður að vera tilbúin.
Engin líkamsræktarstöð gerir kraftarverkið fyrir þig.
Engin einkaþjálfi kemur þér í form.
Engin strangur matarkúr gerir þetta fyrir þig.
Ekki ein einasta tafla né duft gerir þetta fyrir þig.
Þetta er allt þú sjálf/ur.

Svo ekki skella skuldinni á aðra.
Og ekki gefast upp .... á sjálfum þér.
Ef þú ætlar þér eitthvað verður þú að vera við stjórn.
Það er hægt að nálgast hjálpina og fá allar bestu leiðbeiningar og ráð.
En ef þú lætur hlutina ekki virka fellur allt um koll.
Og þá er að hysja upp um sig aftur.
Byrja upp á nýtt .....
Opna nýjar dyr og græja þetta.
Bara aldrei að gefast upp.
Og ekki kenna öðrum um :)

Njótið dagsins.