Fara í efni

Kúrbítsnúðlur með risarækjum.

Um að gera dekra við sjálfa sig. Ekkert mál að elda fyrir einn.
Kúrbítsnúðlur er snild.
Kúrbítsnúðlur er snild.

Kvöldmatur fyrir einn :)
Ég var ein heima og langaði í hollan og góðan fiskrétt.

Í þessum rétti 

8 risarækjur
1/2 kúrbítur
1/4 rauð paprika
5 cm púrrulaukur 
1 rif hvítlaukur
chillí eftir smekk :)
1 msk. camenbert smurostur
1/2 tsk. grænmetikraftur ég nota frá Rapunzel
nokkrir dropar af olíu til að steikja upp úr.
1/2 dl. vatn (minna ef maður vill hafa sósuna þykka)
Salt og pipar

Rífa parmesan yfir í lokin.

Aðferð.

Skera grænmetið niður og steikja (nema sleppa kúrbítnum)
Líka hvítlaukinn og chillí.
Þá skella grænmetiskraftinum saman við og vatni.
Hræra vel saman.
Salt og pipar.
Þá er gott að ydda kúrbítinn yfir sósuna....og passa að rétt hræra upp í sósunni.
Kúrbíturinn má ekki eldast of mikið.
Betra rétt að hræra saman og tilbúið :)
Rækjurnar finnst mér voðalega gott að vera búin að hita upp á pönnu einar og sér og skella svo út í í lokinn.
Má nota smá sítrónusafa yfir ef maður vill.
En nýmulin svartur pipar og parmesan þá er þetta sælgæti.
Njótið :)