Fara í efni

Morgunmaturinn er heilagur hér á bæ.

Svo er útsýnið alltaf aðeins blómlegra :) því í eldhúsinu mínu er allt fullt af kryddjurtum og útsýnið yfir í grænmetið . Rabbabarinn er að verða jafnstór og meðal manneskja.
Morgunmaturinn er bestur.
Morgunmaturinn er bestur.

Góðan daginn.

Ok það allavega rignir ekki :)

Svona byrja ég yfirleitt daginn minn.
Ótrúlega vanaföst með morgunmatinn minn.
Og allt þarf að vera í réttri röð annars bara virkar ekki dagurinn .

Byrja daginn á einu góðu vatnsglasi .
Svo annað glas af vatni með Hafkalkinu , hafróinu og Omega-3 töflunum.
Þá er að fá sér kivi :)
Síðan er ég yfirleitt með svipaða blöndu í muslíinu.
Blanda alltaf sjálf mitt muslí í stóra krukku og á 
Mér finnst æði að fá mé egg í morgunmat.
Og yfirleitt þá linsoðið...en smá trít að hafa svona steikt á sunnudegi.
Ekki dropi af olíu á pönnuna.
Þarf ekki olíu á fínu pönnuna mína .
mér finnst eggin langbest án alls...nema smá salt.
Jarðaberin eru nú bara trít ...enda ekki hægt að leifa sér svoleiðis lúxus daglega hérna á klakanum .

Svo er útsýnið alltaf aðeins blómlegra :)
því í eldhúsinu mínu er allt fullt af kryddjurtum og útsýnið yfir í grænmetið .
Rabbabarinn er að verða jafnstór og meðal manneskja.
Hann er alveg að fíla þessa rigningu.
Grænmetið er mishrifið.
Húsfreyjan ekki hrifin :)

Svo er bara að njóta .
En alltaf að borða morgunmat.
kaupi ekki alveg að maður eigi að hvíla meltingafærin til hádegis....þá væri ég byrjuð að japla á sjálfri mér og kæmist ekki fet í gymið .
Keyra sjálfan sig í gang með hollustu og njóta.
Gefa sjálfum sér tíma...vakna þá bara aðeins fyrr.

Rósirnar eru ekki að skemma fyrir útsýninu :)
Þær fékk ég í gær frá strákunum mínum....sem skruppu út í búð og fannst að konunni vantaði svona fegurð 

Njótið dagsins .