Fara í efni

5 ÁHUGAVERÐ HLAÐVÖRP UM HEILSU

Við hjá Gló erum með ástríðu fyrir heilsu og vellíðan og finnst fátt skemmtilegra en að fylgjast með því sem er að gerast í heilsubransanum: niðurstöður úr nýjum rannsóknum, heilsutrix sem eru að virka, eða nýjar leiðir til að bæta heilsu og vellíðan.
5 ÁHUGAVERÐ HLAÐVÖRP UM HEILSU

Við hjá Gló erum með ástríðu fyrir heilsu og vellíðan og finnst fátt skemmtilegra en að fylgjast með því sem er að gerast í heilsubransanum: niðurstöður úr nýjum rannsóknum, heilsutrix sem eru að virka, eða nýjar leiðir til að bæta heilsu og vellíðan. Ein besta leiðin til að „háma í sig“ heilsutengdar fréttir og upplýsingar á ferðinni er að hlusta á hlaðvörp (e. Podcast). Hlaðvörp eru frábær leið til að nýta tímann betur á langri æfingu, á ferðalögum, við eldamennsku eða á leiðinni í vinnuna. Tengdu heyrnartólin við símann og hækkaðu því hér eru fimm uppáhalds heilsu hlaðvörpin okkar:

  1. BULLETPROOF RADIO: Hlustaðu á heilsugúruinn Dave Asprey deila öllu sem hann veit, en hann er höfundur bókarinnar The Bulletproof Diet og eigandi Bulletproof fyrirtækisins sem framleiðir frábærar vörur (kaffi, MTC olíu, nálastungudýnu o.sv.fr) sem fást í verslun Gló í Fákafeni. Dave hefur prufað flest til þess að finna aðferðir sem við getum notað til að ná hámarksárangri í lífi og starfi og deilir þessum upplýsingum í þættinum og fær góða gesti í heimsókn.  HLUSTA

  2. DAVID WOLFE: vinur okkar er stútfullur af visku um næringu og er líka alveg bráðskemmtilegur. Því finnst okkur einstaklega gaman að hlusta á hlaðvörpin hans sem eru uppfull af gagnlegum upplýsingum og áhugaverðum nýjungum tengdum heilsu. HLUSTA

  3. RICH ROLL: Eftir að hann kláraði Epic5 Challenge, sem er einskonar fimmföld þríþraut, varð Rich metsöluhöfundur og nú þáttastjórnandi á eigin hlaðvarpi sem skorar hátt á vinsældarlista itunes. Í þættinum tekur hann viðtöl við skörpustu...LESA MEIRA