Fara í efni

Heilbrigð sambönd - Hvað vil ég?

Þegar fólk byrjar að vera saman er mikilvægt að velta því fyrir sér hvað maður vill fá út úr sambandi.
Heilbrigð sambönd - Hvað vil ég?

Þegar fólk byrjar að vera saman er mikilvægt að velta því fyrir sér hvað maður vill fá út úr sambandi.

Við þurfum að gera kröfur um það hvernig er komið fram við okkur og vera óhrædd að láta vita af þeim. Það er misjafnt hvað skiptir okkur máli og mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að ekkert samband er fullkomið.

Það getur verið gott að skrifa niður hvað maður vill fá út úr sambandi og velta fyrir sér hvað manni finnst mikilvægast.

 

 

 

 

Svona vil ég að komið sé fram við mig:

  • Að mér sé treyst
  • Að ég njóti hvatningar
  • Að ég sé elskuð/elskaður
  • Að komið sé fram við mig af hreinskilni
  • Að það sé séð um mig
  • Að borin sé virðing fyrir mér
  • Að það sé haldið utan um mig
  • Að ég geti treyst honum/henni
  • Að við leiðumst

Fæ ég það sem ég vil út úr sambandinu?

Það getur verið gott að skoða reglulega þennan lista og velta fyrir sér hvort maður sé að fá það sem skiptir mann máli út úr sambandinu. Það er sérstaklega mikilvægt ef maður fer að efast eitthvað um sambandið.

Að sama skapi má snúa dæminu við og spyrja sig hvernig maður vill koma fram við kærustu eða kærasta. Gef ég af mér í sambandinu? Við getum ekki gert kröfur á aðra ef við ætlum ekki sjálf að leggja okkur fram.
Við berum ábyrgð á framkomu okkar við aðra!

Hvernig kemur fólk fram í heilbrigðu sambandi?

Í heilbrigðu sambandi ríkir jafnrétti, heiðarleiki og virðing. Einnig þurfa samskiptin að vera góð. Í góðum samböndum eru góðu tímarnir fleiri en þeir slæmu.

Heiðarleiki

Það getur hljómað sem klisja en heiðarleiki er grunnur að góðu sambandi. Bæði hjá kærustupörum en líka í samböndum við fjölskyldu og vini er heiðarleiki mikilvægur. Í heiðarlegum samböndum geta báðir viðurkennt að hafa rangt fyrir sér, sagt sannleikann án þess að óttast og fyrirgefið mistök.

Virðing

Í góðum samböndum er virðing á báða bóga. Virðing er til dæmis að styðja við hinn í því sem hann eða hún hefur áhuga á. Það er mikilvægt að virða skoðanir annarra, vera næmur á tilfinningar og treysta hinum í sambandinu. Þegar virðing ríkir í sambandinu er annar ekki að reyna að stjórna hinum eða breyta því hvernig maður er.

Góð samskipti

Góð samskipti eru límið sem heldur fólki saman. Það er mikilvægt að geta rætt málin af heiðarleika. Maður þarf að hlusta á hinn aðilann og vera tilbúinn að ræða vandamál og ósamkomulag. Stundum verða rifrildin hreinlega til vegna misskilnings!

Til að efla góð samskipti er gott að hafa þetta í huga:

  • Verum nákvæm og skýr
  • Greinum frá tilfinningum okkar og spyrjum um tilfinningar hins aðilans (eða hinna)
  • Skoðið hvað það er sem skiptir ykkur máli og hvað skiptir máli fyrir hinn
  • Veltið upp mögulegum lausnum þar sem báðir aðilar (eða allir) fá sem mest af því sem þeir vilja.

Forðumst þetta:

  • Kaldhæðni
  • Uppnefningar
  • Að grípa fram í
  • Setja afarkosti (Ef þú kemur ekki með mér á ballið erum við bara hætt saman!)

Grein af vef landlaeknir.is