Fara í efni

Vertu kærleiksríkt vitni - Guðni og hugleiðing dagsins

Vertu kærleiksríkt vitni - Guðni og hugleiðing dagsins

INNSÆISÆFINGAR

Vertu kærleiksríkt vitni. Þegar þú gleymir þér eða gerir það sem ábyrgðarlausar og fjarverandi manneskjur kalla mistök þá fyrirgefurðu þér umbúðalaust. Elskaðu þig samt og njóttu afleiðinga gjörða þinna í fullri vitund og ábyrgð.

Ef aðrar manneskjur verða fyrir áreiti í samvinnu við þig er sjálfsagt að biðjast velvirðingar – ekki fyrirgefningar – og taka þannig ábyrgð á þínu framlagi, án þess að gera lítið úr þeirra þátttöku.

Við veitum athygli og erum kærleiksríkt vitni í eigin tilvist. Við umföðmum týnda soninn þegar hann kemur heim, í staðinn fyrir að vísa honum burt eða afneita honum. Við hjálpum okkur á fætur þegar við dettum.

Hvernig vitum við að við erum að heyra í innsæinu en ekki skortdýrinu? Innsæið er leiftur, hugboð. Um leið og samræður eru farnar í gang er ljóst að skilaboðin koma frá heilanum og skortdýrinu.

Við finnum fyrir hjartanu, fyrir umhverfinu, fyrir snertingu okkar við annað fólk og heiminn. Við tökum eftir tilfinningum okkar þegar við nærumst, förum af fullum krafti inn í nánd við hvert tækifæri og lærum að fara djúpt inn í eigin tilvist.