Fara í efni

Bananabrauð (heilhveiti)

Dásamlega hollt og gott bananabrauð fyrir krakka, konur og karla.
Alveg æðislegt bananabrauð
Alveg æðislegt bananabrauð

Dásamlega hollt og gott bananabrauð fyrir krakka, konur og karla.

Uppskrift :

1 egg

1 dl púðursykur

3 bananar (vel þroskaðir)

5 dl KORNAX heilhveiti (grænn poki)

½ - ¾  tsk salt

½ tsk matarsódi

½ tsk lyftiduft

Aðferð :

Hrærið egg og sykur vel saman í dágóða stund,  eða þar til

Blandan er orðin létt og ljós.

Stappið bananana gróflega með gaffli og bætið út í eggjahræruna.

Bætið öllum þurrefnum saman í skál og blandið síðan varlega saman við hin hráefnin.

Setjið í smurt brauðform og látið í 190°c heitan ofn í 40 mín.

Njótið~