Fara í efni

Rautt pestó „Pomodoro“

það er nú ekkert heilagt í hlutföllum í uppskriftum þegar kemur að svona pestói,
Rautt pestó  „Pomodoro“

Rautt pestó  „Pomodoro“

Þetta verður ca. 6 dl af sósu.

1 dl sólþurrkaðir tómatar

½ dl  grænar ólívur

1 msk tómatmauk (tómatpúrra)

¾ dl furuhnetur / cashew hnetur (léttristaðar á þurri pönnu)

1 dl Parmesan (rifinn)

4 stk hvítlauksgeirar

½ dl basil ferskt(einn hnefi)

1 msk sítrónusafi

2 ½ dl Ólívuolía eða Isíó-4 olía

 

Aðferð:

Öllu blandað saman í matvinnslukönnu og maukað vel saman, smakkað til með salti og pipar

Sett í ílát með loki, geymist í kæli í lágmark tvær vikur.