Fara í efni

Græni drykkurinn - uppskrift frá foodandGood.is

Stútfull kanna af hamingju.
Græni drykkurinn - uppskrift frá foodandGood.is

Stútfull kanna af hamingju.

Og við á Heilsutorg mælum með að þið kíkið á síðuna foodandgood.is 

 

Hráefni: 

1 stórt mangó, hýðið tekið af og skorið bita
1 bakki spínat frá Lambhaga
2 cm engiferbútur, skorinn smátt
2 græn epli, hýðið tekið af og skorin í bita
1 gúrka, skorin í bita
2 sítrónur, hýðið tekið af og skornar í bita
1 bolli frosið mangó
250 - 500 ml kókosvatn eða vatn
Fyllt upp með klökum

Allt sett í blenderinn, nema klakarnir og mixað í tætlur. Fyllt upp með klökum. Þessi fallegi drykkur er dásamleg næring hvort sem er eldsnemma að morgni eða í síðdegissólinni.

Njótið dagsins!