Fara í efni

Grænn með eplum, kanil og Bok Choy

Þessi græni með eplum og bok choy er dásamlegur. Ástæðan, jú epli og kanill passa svo ofsalega vel saman og gera bragðið dásamlegt.
Grænn með eplum, kanil og Bok Choy

Þessi græni með eplum og bok choy er dásamlegur.

Ástæðan, jú epli og kanill passa svo ofsalega vel saman og gera bragðið dásamlegt.

Einnig er bok choy afar ríkt af járni og kalki.

Eplin eru trefjarík, c-vítamín rík og innihalda einnig andoxunarefni.

Uppskrift er fyrir einn drykk.

 

 

 

 

 

 

 

Hráefni:

2 epli, án hýðis og hreinsuð

1 tsk af kanil

1 mandarína, án hýðis og steina

¼ af avókadó

2 hausar af baby bok choy, um 2 bollar

Vatn eftir smekk

Leiðbeiningar:

Byrjaðu á því að setja vatnið í blandarann, svo mjúku ávextina og síðan það græna í restina.

Blandið á hæstu stillingu þar til drykkur er mjúkur.

Njótið vel!