Fara í efni

Þessi er rauður og fullur af berjum og rauðrófum

flauels mjúkur drykkur með berjum og rauðrófum.
Þessi er rauður og fullur af berjum og rauðrófum

flauels mjúkur drykkur með berjum og rauðrófum.

Bragðlaukarnir dansa af gleði yfir þessum drykk. Dásamleg berjablanda og rauðrófur.

Uppskrift er fyrir tvo drykki.

Hráefni:

1 meðal stór ristuð rauðrófa – fjarlægja hýðið

2 bollar af frosinni berjablöndu

1 bolli af hreinum jógúrt

½ bolli af appelsínusafa – helst ferskt kreistur

1 msk af hunangi – má sleppa

Leiðbeiningar:

Setjið öll hráefnin í blandarann og látið á mesta hraða og blandið þar til drykkur er mjúkur.

Berið fram strax.

Njótið vel!