Fara í efni

Fræhrökkbrauð með feta-og sítrónumauki

Og hvað var það sem var svona gott?
Heimagerð fræhrökkbrauð
Heimagerð fræhrökkbrauð

Og hvað var það sem var svona gott?

Heimagerð fræhrökkbrauð með feta- og sítrónumauki. Hollt og brjálæðislega gott. Frábært í saumaklúbbinn, sem forréttur, millimál og sjónvarpssnarl. Eða á ostabakkann.

Dásamlegt við hvaða tilefni sem er.

Fræhrökkbrauð

  • 0,5 dl sesamfræ
  • 0,5 dl hörfræ
  • 3/4 dl sólblómafræ
  • 1/4 dl graskersfræ
  • 2 dl maísmjöl
  • 0,5 dl ólífuolía
  • 2-2,5 dl sjóðandi vatn
  • gróft salt, t.d. maldonsalt
  • rósmarín

Hitið ofninn í 150°. Setjið öll hráefni, fyrir utan vatnið í skál og hrærið saman. Hellið sjóðandi vatni yfir (ég nota á milli 2 og 2,5 dl) og hrærið saman í deig.

Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír og setjið deigið yfir. Notið sleikju og dreifið úr deiginu þannig að það fylli út í bökunarplötuna (reynið að ná því eins þunnt og þið getið).

Stráið salti og rósmarín yfir og bakið í 45 mínútur. Ég brýt hrökkbrauðið bara í óreglulega bita þegar það hefur kólnað en ef þið viljið fá reglulegri hrökkbrauðssneiðar þá mæli ég með að þið skerið það með pizzaskera áður en það fer í ofninn.


Feta- og sítrónumauk
 (uppskrift frá Paul Lowe)

  • 200 g fetakubbur
  • 1 msk rifið sítrónuhýði (passið að taka bara ysta lagið, ekki rífa sítrónuna djúpt niður)
  • 1-2 msk ferskur sítrónusafi
  • 1 hvítlauksrif, hakkað
  • 6 msk extra virgin ólífuolía
  • smá af rauðum piparflögum (ég notaði chili explotion krydd)

Setjið fetaostinn, sítrónuhýðið, 1 msk af sítrónusafa, hvítlauk og ólífuolíu í matvinnsluvél og látið vélina ganga þar allt hefur blandast vel en er enn með aðeins grófri áferð.

Smakkið til, ef hræran er of sölt þá er meiri sítrónu bætt við. Setjið í skál, sáldrið smá ólífuolíu yfir og kryddið með rauðum piparflögum.

Ef þú vilt hafa samband þá er ég með netfangið svavag@gmail.com

Bestu kveðjur, Svava

www.ljufmeti.is 

Allt hráefni í þessar uppskriftir fæst í

HAGKAUP