Fara í efni

Hollar kartöfluflögur – sætar kartöflur,dökkt súkkulaði og sjávar salt

Langar þig að bera fram öðruvísi eftirrétt eða snakk í veislu eða partý?
Hollar kartöfluflögur – sætar kartöflur,dökkt súkkulaði og sjávar salt

Langar þig að bera fram öðruvísi eftirrétt eða snakk í veislu eða partý?

Þú getur útbúið þessar flögur á nokkrum mínútum.

Þessi uppskrift er fyrir 4 til 6 en það má alltaf stækka hana.

Undirbúningur eru um 5 mínútur, eldunartími eru um 10 mínútur.

 

 

 

Hráefni:

Kókósolía til að steikja flögur

1 stór sæt kartafla – skorin í afar þunnar sneiðar

60 gr af dökku súkkulaði, 85 – 90 % og saxa það niður í jafnstóra bita

Sjávar salt

Leiðbeiningar:

  1. Taktu plötu eða eldfastmót og hyldu botninn með eldhúspappír. Hitaðu 2 cm af kókósolíunni þar til hún er farin að steikjast á pönnunni.
  2. Nú skaltu setja kartöfluflögurnar varlega ofan í kókósolíuna til að steikja þær í grunnri olíunni. Alls ekki setja of mikið af flögum á pönnuna í einu. Þessu þarf að snúa við einu sinni og svo taka af pönnu og setja ofan á eldhúspappírinn til að ná olíunni úr.
  3. Nú tekur þú ofnplötu og hylur með smjörpappír. Bræddu súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni (tekur c.a 30 sek.)
  4. Dýfðu núna flögum í súkkulaðið og settu svo á bökunarpappír. Stráðu sjávarsaltinu yfir. Skelltu þessu svo í ísskápinn þar til súkkulaðið er orðið hart.
Þetta á eftir að slá í gegn – njótið vel~