Fara í efni

Súkkulaðibananamús

Frábær orkumikill hádegisverður, sem hentar vel fyrir þá sem vilja gera vel við sig.
Súkkulaðibananamús

Frábær orkumikill hádegisverður, sem hentar vel fyrir þá sem vilja gera vel við sig.

 

Hráefni: 

3 frosnir bananar
3 tsk “carob powder”
10 stk döðlur

Bananarnir skornir í bita og frystir.

Döðlurnar lagðar í bleyti í 20 – 30 mín.

Setjið banana, döðlur og carob powder í matvinnsluvél og hrærið þar til rétt áferð er komin.

Það fer vel að hafa bláber með súkkulaðimúsinni.

Carob powder, er duft sem er oft notað í staðinn fyrir kakóduft. Þetta er sætuefni, fínt fyrir þá sem eru að minnka súkkulaðineyslu.

Njótið dagsins.

Uppskrift fengin af Food & Good