Fara í efni

Bláberja pæjur - Mæðgurnar

Aldrei þessu vant gáfum við okkur ekki tíma fyrir í berjamó í ár, en okkur klæjar engu að síður í fingurna að útbúa eitthvað gott úr berjum
mynd: Hinrik Þór Ágústsson
mynd: Hinrik Þór Ágústsson

Nú eru margir komnir úr berjamó með krukkur og frystikistur fullar af nýtíndum berjum. Þvílíkur lúxus að geta skroppið upp í fjallshlíð og tínt næringarrík villt ber! Berin eru holl og góð, en hluti af hollustunni er án efa fólginn í útiverunni, tengingunni við náttúruna og samverustundum með börnunum. 

Aldrei þessu vant gáfum við okkur ekki tíma fyrir í berjamó í ár, en okkur klæjar engu að síður í fingurna að útbúa eitthvað gott úr berjum, eins og við erum vanar á þessum árstíma. Í fyrra löguðum við dásamlega bláberjasultu ogmeinholla krækiberjasaft úr berjum sem við tíndum sjálfar. Í vikunni keyptum við okkur bakka af nýtíndum íslenskum bláberjum og útbjuggum þessar dýrindis bláberjapæjur. Mmmm.... 

 

Bláberja pæjur

Botn

  • 1 b pekanhnetur
  • 1 b mórber
  • ¼ tsk vanilla
  • 1 msk kókosolía
  1. Setjið pekanhnetur, mórber og vanillu í matvinnsluvél og blandið saman.
  2. Setjið kókosolíuna útí og klárið að blanda þar til þetta klístrast saman. 
  3. Þjappið niður í 6 lítil form.

Fylling

  • 2 b bláber
  • 1 ½ b kasjúhnetur sem eru búnar að liggja í bleyti í 2 klst
  • 1 msk sítrónusafi
  • 1 msk hlynsíróp
  • 3 msk kókosolía
  • smá sjávarsaltflögur
  1. Setjið bláberin í blandara og blandið þar til þau maukast.
  2. Bætið þá kajsúhnetunum útí ásamt sítrónusafa og hlynsírópi og blandið vel. Ef blandarinn ykkar er lúinn má nota matvinnsluvél.
  3. Endið á að setja kókosolíuna útí ásamt sjávarsaltinu og klárið að blanda.
  4. Hellið yfir botnana og setjið inn í frysti og látið stífna.
  5. Skreytið með ferskum berjum og berið fram með kókosrjóma, eða þeim rjóma sem ykkur finnst bestur.

Kókosrjómi - 2 aðferðir 
Setjið innihald úr 1 dós af kókosmjólk í blandara ásamt smá vanillu og blandið vel. Hellið þessari blöndu í rjómasprautu og setjið gashylki í. Til búið.
EÐA
Setjið 1 dós af kókosmjólk inn í ísskáp í nokkrar klukkustundir, opnið dósina og setjið þykka hlutann af kókosmjólkinni í hrærivél ásamt smá vanillu og þeytið eins og þið gerið við venjulegan rjóma.

 Birt í samstarfi við