Fara í efni

Kjúklingabringur með teriyaki og hrísgrjónum að hætti Lólý.is

Klikkar aldrei þessi samsetning.
Súper auðveldur kjúklingaréttur frá Lólý
Súper auðveldur kjúklingaréttur frá Lólý

Þessi einfaldi kjúklingaréttur varð bara til í eldhúsinu heima um daginn. Kjúklingur með hvítlauk, engiferi og teriyaki sósu er sko alveg match made in heaven!!!

Klikkar aldrei þessi samsetning.

  • 2 kjúklingabringur
  • 2 hvítlauksrif pressuð
  • 3 cm ferskt engifer rifið
  • ólífuolía
  • 1 dl teriyaki sósa(eða eftir smekk)
  • 1 dós kókósmjólk
  • salt og pipar
  • lúka ferskt kóríander(smátt saxað)
  • 1 rauður chilli fræhreinsaður og smátt saxaður
  • 1 tsk cayenne pipar
  • Hýðishrísgrjón
  • Fetaostur

Byrjið á því að sjóða hrísgrjónin því þau taka 45 mínútur að sjóða ef maður er með hýðishrísgrjón.
Skerið kjúklinginn í strimla, setjið olíu og pressaðan hvítlauk á pönnu og engiferið og steikið aðeins áður en þið bætið kjúklingnum út í og steikið hann þangað til hann er steiktur í gegn. Takið þá teriyaki sósuna og hellið yfir ásamt kókósmjólkinni, kryddið eftir smekk og látið malla í smá tíma. Bætið þá chilli út í og kóríander. Þegar ég er búin að sjóða grjónin skola ég þau aðeins og bæti svo út í þau fetaostinum og smá kóríander í viðbót. Nú svo er bara að njóta!!!