Fara í efni

Kjúklingaréttur með kasjúhnetum

Þessi er frá Ljómandi.is
Ljómandi.is - kjúklingaréttur með kasjúhnetum
Ljómandi.is - kjúklingaréttur með kasjúhnetum

Innihald: / 1 msk kókosolía / 2 rauðar paprikur / 200g heilar kasjúhnetur / 1 kgkjúklingabringur / 1 msk kókoshveiti (eða annað hveiti) / 1/2 tsk himalayasalt / 1 búnt vorlaukur.

Sósa: / 1/3 bolli tamarisósa eða sojasósa / 1/4 bolli eplaedik (eða hrísgrjónaedik) / 2 msk tómatpúrra / 2 msk kókospálmasykur / 1 tsk akasíuhunang eða hrátt hunang (eða bara 3 msk af annarri hvorri sætunni) / 3 hvítlauksgeirar / 1 msk ferskt rifið engifer / smásvartur mulinn pipar.

  1. Byrjið á að skera paprikurnar og kjúklinginn í munnbita.
  2. Hitið olíuna á pönnu, skellið papríkunni yfir og látið malla í nokkrar mínútur eða þar til mjúkar. Takið svo af pönnunni.
  3. Setjið kjúklingabitana á pönnuna, setjið kókoshveitið eða það hveiti sem þið viljið nota yfir, saltið og hrærið af og til í þar til kjúklingurinn er að mestu eldaður í gegn.
  4. Á meðan kjúklingurinn er að eldast er hægt að gera sósuna sem fer yfir og hún fer á pönnuna þegar kjúklingurinn er að mestu tilbúinn.
  5. Bætið paprikunni út á pönnuna ásamt kasjúhnetunum.
  6. Lækkið hitann og látið malla í nokkrar mínútur.
  7. Setjið vorlaukinn yfir réttinn þegar hann er tilbúinn.

IMG_1646_2

Þessi ótrúlega einfalda og góða uppskrift dugar fyrir ca. 4-6, tekur 10 mínútur að undirbúa og ca. korter að elda.

Í upprunalegu uppskriftinni er notað hrísgrjónaedik en ég skipti því út fyrir eplaedik. Þessi kjúklingaréttur hefur algjörlega slegið í gegn hérna á heimilinu og er orðinn okkar nýjasta uppáhald. Gott að bera fram með fullt af brakandi salati og flottu brauði.

Þessi kemur frá http://www.aspicyperspective.com

 Ljomandi-bordi_3

Meira á www.ljómandi.is - og það er enþá meira ljómandi.

Ef þú vilt hafa samband við mig er netfangið mitt: valdis@ljomandi.is

Ég vona að ykkur líki ljómandi vel.

Bestu kveðjur, Valdís.