Fara í efni

Kjúklingaspjót með appelsínum

Mér finnst alltaf svolítið skemmtilegt að gera grillspjót og setja á þau allt sem hugurinn girnist – gefur okkur svo mikla möguleika á því að grilla allar tegundir af hollu og góðu grænmeti. Þessi spjót eru í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni en það sem gerir það að verkum að kjúklingurinn verður sérstaklega mjúkur, er að hann er látinn marinerast vel í bæði ólífuolíu og sýrunni af appelsínunni.
Kjúklingaspjót með appelsínum

Mér finnst alltaf svolítið skemmtilegt að gera grillspjót og setja á þau allt sem hugurinn girnist – gefur okkur svo mikla möguleika á því að grilla allar tegundir af hollu og góðu grænmeti.

Þessi spjót eru í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni en það sem gerir það að verkum að kjúklingurinn verður sérstaklega mjúkur þegar hann er látinn marinerast vel í bæði ólífuolíu og sýrunni af appelsínunni.

 

Hráefni:

4 kjúklingabringur

1-2 rauðlaukar

2 appelsínur(ein á spjótin og safi úr hálfri í marineringuna)

2 dl Ólífuolía

2 tsk cumin

1 tsk cayenne pipar

2 tsk engifer(ferskt rifið niður)

salt og pipar eftir smekk

Leggið í bleyti 10 grillpinna í 10-15 mínútur.

Leiðbeiningar: 

Skerið kjúklingabringurnar í bita, blandið saman í skál ólífuolíunni, appelsínusafanum og kryddinu og leggið kjúklingabitana í kryddlögin.  Skerið appelsínuna í 16 bita og rauðlaukinn í 20 bita.  Takið svo grillpinnana og raðið á þá, fyrst rauðlauk, síðan kjúklingur og þar á eftir appelsínu.  Ég setti rauðlauk tvisvar sinnum, appelsínuna tvisvar sinnum og 3 bita af kjúkling á hvert spjót.

Hitið útigrillið vel og raðið grillspjótunum á grillið.  Það þarf að grilla spjótin í 15-20 mínútur eða þangað til kjúklingurinn er vel grillaður í gegn og passið upp á að snúa spjótunum reglulega.

Sósa:

1 dós sýrður rjómi

2 msk grísk jógúrt

2 hvítlauksrif (pressuð)

1 tsk engifer

1 tsk cumin

salt og pipar eftir smekk

safi úr hálfri sítrónu

Blandið öllu hráefninu vel saman og smakkið til eftir smekk. Það er best að gera sósuna fyrst og láta hana standa inn í ísskáp á meðan verið er að grilla spjótin.

Svo er auðvitað bara spurning um hvaða meðlæti maður er með – fer eftir því hvað er í uppáhaldi hjá manni hverju sinni. Mér finnst t.d alltaf gott að hafa sætar kartöflur með í hvaða formi sem er, hvort sem ég grilla þær eða set í ofninn.