Fara í efni

Mexíkóskt kjúklingasalat með chillí að hætti Lólý

Við þurfum ekkert að kynna hana Lólý, en hér hendir hún fram dásamlegu Mexíkósku kjúklingasalati með chilli.
Enn ein dásemdin frá Lólý.is
Enn ein dásemdin frá Lólý.is

Við þurfum ekkert að kynna hana Lólý, en hér hendir hún fram dásamlegu Mexíkósku kjúklingasalati með chilli sem kítlar bragðlaukana heldur betur.

 

 

  • 3 kjúklingabringur
  • 1 bref burritos krydd
  • 1 flaska sweet chilli sósa
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 1 dós maísbaunir
  • 1 gul paprika
  • 1 rauð paprika
  • 1-2 avókadó
  • 1/2 rauðlaukur
  • smá sítrónusafi
  • smá salt
  • tómatar
  • 1 poki salat(uppáhalds ykkar)
  • 1 mexíkó ostur
  • ferskt kóríander
  • 2 lúkur nachos flögur(ég notaði Doritos flögur með sweet chilli pepper flavor)

Skerið kjúklinginn í bita, setjið á pönnu og dreifið burritos kryddinu yfir og smá ólífuolíu og steikið kjúklinginn og blandið þessu vel saman. Þegar kjúklingurinn er steiktur í gegn, takið þá helming af sweet chilli sósuna og hellið yfir kjúklinginn og blandið vel saman, látið standa.
Takið sýrða rjómann og blandið restinni af chilli sósunni við hann og látið standa meðan þið útbúið salatið. Skerið allt grænmetið, og passið upp á að þegar þið skerið avókadóið þá er gott að dreifa smá sítrónusafa yfir og salti svo að hann haldist grænn. Skerið ostinn í bita og kóríanderið er best að rífa yfir salatið og myljið svo nachos flögurnar aðeins og dreifið yfir. Berið svo fram með góður brauði og sósunni sem þið bjugguð til úr sýrða rjómanum.

 

Fylgdu okkur á Facebook