Fara í efni

Piri Piri kjúklingur með grilluðum paprikum.

Að hætti Sollu
Piri Piri kjúklingur
Piri Piri kjúklingur

Fyrir 4

Kjúklingur:
4 stk stór kjúklingalæri með skinni og beini
1 stk rauð paprika
1 stk gul paprika
salt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk

Piri Piri sósa:
½ stk rauðlaukur
2 stk hvítlauksrif
2 stk ferskur rauður chili
1 msk reykt paprika
1 stk sítróna
2 msk edik
1 msk worchestershire sósa
1 búnt ferskur basil

Í byrjun: Takið saman allt hráefnið. Stillið ofninn á 200°C. Setjið stóra grillpönnu á helluna og kveikið undir á háan hita. Piri Piri sósa: Afhýðið laukinn og skerið í fjóra bita, afhýðið hvítlauksrifin og skerið í tvo bita og setjið í blandarann. Bætið út í chili og restinni af hráefninu. Gott að setja 1 dl af vatni með, því það gufar upp í ofninum. Allt er svo blandað þannig að úr verður silkimjúk dressing. Kryddið með salti og nýmöluðum svörtum pipar eftir smekk.

Kjúklingurinn:Takið kjúklingalærin og snúið skinninu niður og skerið í kjötið og losið beinið. Setjið skinnhliðina á pönnuna, kryddið með salti og nýmöluðum svörtum pipar eftir smekk. Steikið lærin þangað til þau brúnast og snúið við. Þegar búið er að brúna skinnlausu hliðina er kjúklingurinn settur í eldfast mót, sem búið er að hella piri piri dressingunni í og svo í ofninn á 200°C í 15 mínútur (skinnið er látið snúa upp). Gott að setja ferskt timian og ­rósmarín yfir kjúklinginn. Paprikurnar hreinsaðar og skornar í stóra bita og grillaðar á pönnunni á millihita í 10 mín. Kjúklingurinn tekinn úr ofninum og paprikurnar settar saman við og rétturinn borinn fram.