Fara í efni

Lax í ofni með sítrónugrasi, engifer og chili

Hægt að nota silung eða bleikju
Lax í ofni með sítrónugrasi
Lax í ofni með sítrónugrasi
1 kg laxaflak 
½ búnt ferskt kóríander (blöðin)
3 cm engiferrót, afhýdd og skorin í eldspýtur
2 stk stór hvítlauksrif, afhýdd og skorin í þunnar sneiðar
1 stilkur sítrónugras, skorinn í þunnar skásneiðar
1 stk rauður chili, kjarnhreinsaður og skorinn í þunnar sneiðar
2½ dl ljóst Amé (drykkur sem fæst í heilsu­ búðum og stórmörkuðum, má nota hvítvín)
2 msk ólífuolía
salt og nýmalaður svartur pipar 

Dressing:
¼ stk agúrka, afhýdd, kjarnhreinsuð og skorin í fína teninga 
4 msk ristuð sesamolía
6 msk fiskisósa
1½ dl vatn með 1 msk af lífrænum grænmetiskrafti 
1½ msk dökkt agave eða hunang
¼ stk lítill chili, skorinn í þunnar sneiðar
 
Lax: Laxinn er settur í eldfast mót. Engifer, kóríander, hvítlauk, sítrónugrasi og chili er dreift yfir flakið. Amé-inu og ólífuolíu er hellt yfir og kryddað með salti og pipar. Setjið álpappír eða lok yfir og bakið í ofní í 20–25 mín. við 180°C.

Dressing: Hrærið innihaldinu saman og hellið yfir laxinn rétt áður en hann er borinn fram.