Fara í efni

Myntu og Súkkulaðiflögu Súper smoothie

Hvað færðu þegar þú blandar saman vanillu, myntu, dökku súkkulaði, banana, döðlu og avocado?
Þessi bragðast eins og piparmyntusúkkulaði
Þessi bragðast eins og piparmyntusúkkulaði

Hvað færðu þegar þú blandar saman vanillu, myntu, dökku súkkulaði, banana, döðlu og avocado?

Ekki nema bara einn sá bragðbesta hollustu smoothie í bænum. Glas af þessum dásamlega græna drykk bragðast eins og piparmyntusúkkulaði mínus samviskubitið.

Hráefni:

2 bollar af spínat

½ banana, má vera frosinn

¼ af avocado

¼ bolli af ferskri myntu.. eða meira, fer bara eftir smekk hvers og eins

1 tsk af hreinni vanillu

1 steinlaus daðla

Klípa af sjávarsalti

1 bolli af möndlumjólk

1 oz af 70% dökku súkkulaði

Settu allt hráefnið saman í blandara nema súkkulaðið og láttu blandast vel saman. Settu smávegis af súkkulaðinu saman við og láttu hrærast meira.

Helltu í glas og settu afganginn af súkkulaðinu ofan á til að toppa þetta.

Njóttu ~