Fara í efni

Salat með Mexíkósku ívafi – afar bragðgott

Það frábæra við að skella í salat er að það þarf ekki að vera flókið.
Salat með Mexíkósku ívafi – afar bragðgott

Það frábæra við að skella í salat er að það þarf ekki að vera flókið.

Oft er fólk að leita leiða til að gera salatið meira spennandi og þá segi ég nú bara „borðið salat í öllum regnboganslitum“.

Og þá er ég að meina, notið litríkt grænmeti og nóg af því.

 

 

 

 

Hráefni:

1 bolli af romaine káli – söxuðu

1/3 af rauðri papriku, niðurskorin

¼ af grænum lauk – söxuðum

¼ bolli af gulum baunum

1/3 bolli af tómötum – skornum í bita

½ bolli af hrísgrjónum – soðnum

½ avókadó – taka innan úr og skera í bita

Graslaukur eftir smekk

1 stór skeið af salsa

½ lime kreist

Leiðbeiningar:

  1. Settu elduðu hrísgrjónin í uppáhalds salat skálina þína.
  2. Og einfaldara gæti þetta ekki verið, bættu nú öllu hinu hráefninu saman við.

Auðvelt ekki satt ?

Það er ekki flókið að borða hollt.

Njótið.