Fara í efni

Eplakaka með karamellusósu frá Eldhúsperlum

Æðisleg eplakaka úr bókinni Af bestu lyst I með smá karamellutwisti. Ég prófaði hana í boði þar sem ungir jafnt sem aldnir voru hæst ánægðir. Þessi kaka hefur oft verið bökuð í fjölskyldunni við hin ýmsu tilefni og alltaf verið jafn vinsæl, eins og reyndar margt annað úr þessari góðu matreiðslubók.
Eplakaka með karamellusósu frá Eldhúsperlum

Æðisleg eplakaka úr bókinni Af bestu lyst I með smá karamellutwisti. Ég prófaði hana í boði þar sem ungir jafnt sem aldnir voru hæst ánægðir.

Þessi kaka hefur oft verið bökuð í fjölskyldunni við hin ýmsu tilefni og alltaf verið jafn vinsæl, eins og reyndar margt annað úr þessari góðu matreiðslubók.

Það er smá marsipan í kökunni sem gerir hana sparilega en því má vel sleppa. Ég set líka í hana kanil sem mér finnst ómissandi í eplakökum. Ég get þó fullyrt að jafnvel marsipan-fælur kunna að meta þessa köku.

Ég er vön að nota alltaf hrásykur, spelt og vínsteinslyftiduft í minn bakstur, einfaldlega því mér finnst það betra á bragðið og betra hráefni en mikið unnið hvítt hveiti, hvítur sykur og venjulegt lyftiduft sem einhver sagði mér að innihéldi ál. Það hljómar ekki vel í mínum eyrum. Það er þó nokkuð ljóst að þessi kaka eins og kökur almennt er engin heilsufæða og mér dytti ekki í hug að halda því fram. Mér finnst betra að baka aðeins sjaldnar og get því leyft mér að nota aðeins betra hráefni og útkoman verður oftast mjög góð. 

Eplakaka með karamellusósu – breytt uppskrift úr bókinni Af bestu lyst

  • 300 grömm epli (skorin og flysjuð 
  • 1 msk hrásykur
  • 1 msk spelt
  • 1 tsk kanill

Eplin flysjuð, skorin í bita og blandað saman við sykurinn, speltið og kanilinn. Sett til hliðar.

  • 3 egg
  • 2 dl hrásykur
  • 1 tsk vanilluextract
  • 1.5 dl bragðlítil matarolía
  • 2 dl spelti (eða bara hveiti)
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft (eða 1 tsk venjulegt lyftiduft)
  • 100 grömm marsipan
  • 1 eggjahvíta

Hrærið saman egg, sykur, vanillu og olíu þar til ljóst og létt. Blandið speltinu og lyftiduftinu saman við. Setjið í smurt lausbotna kökuform eða hringlaga form með gati í miðjunni. Dreifið eplunum yfir deigið.

Hrærið saman marsipan og eggjahvítu og setjið yfir kökuna.

Bakið í miðjum ofni við 175 gráður í um það bil 40 – 45 mínútur.

Karamellusósan setur algjörlega punktinn yfir i-ið Upplagt að gera hana meðan kakan bakast.

  • 50 grömm smjör
  • 50 grömm púðursykur
  • 1/2 tsk vanilluextract
  • 1/4 tsk gróft salt t.d maldon
  • 1/2 dl rjómi

Öllu blandað saman í potti og látið malla við meðalhita í ca. 5 mínútur.

Þegar kakan er tilbúin er ágætt að láta bæði kökuna og karamellusósuna kólna í hálftíma áður en sósunni er hellt yfir.

Uppskrift af vef eldhusperlur.com