Fara í efni

Glútenfríar og ljúffengar rjómabollur með jarðarberjafyllingu að hætti Evu Laufey Kjaran

Bolla Bolla, bráðum kemur bolludagurinn.

Frábær uppskrift af bollum fyrir bolludaginn og þær henta þeim sem eru með glútenóþol. 

Uppskrift gefur um 8 - 10 bollur.

Hráefni:  

100 g smjör

2 dl vatn

2 msk sykur (má sleppa)

120 g Finax glútenfrítt mjöl (rauð ferna)

3 stór egg NESBÚ (eða fjögur lítil)

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C. Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 - 3 mínútur áður en hveitið er sett út í. )

Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman. Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum. Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hæta á að bollurnar falli.  

Jarðarberjafylling

1 askja jarðarber ca. 8 - 10 stk.

4 dl rjómi

2 tsk flórsykur

Aðferð:

Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli. Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin. Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif. Setjið fyllinguna í sprautupoka og sprautið á bollurnar. Ég sáldraði flórsykri yfir bollurnar en það er að sjálfsögðu hægt að setja á þær glassúr. Bæði betra.

Uppskrift fengin af síðu evalaufeykjaran.com