Fara í efni

Jólakonfekt

Nú er ekki nema rétt rúmlega mánuður til jóla og margir farnir að huga að bakstri fyrir jólin. Solla á Gló deildi þessari gómsætu og hollu jólakonfektsuppskrift með okkur. Njótið vel.
Jóla jóla
Jóla jóla

Nú er ekki nema rétt rúmlega mánuður til jóla og margir farnir að huga að bakstri fyrir jólin.

Solla á Gló deildi þessari gómsætu og hollu jólakonfektsuppskrift með okkur.

Njótið vel.

Súkkulaðið:
1 dl. kaldpressuð kókosolía EÐA kakósmjör
½ dl. hreint kakóduft (má líka nota RAW kakó)
½ dl. hlynsýróp EÐA xylitol EÐA kókospálmasykur
1 tsk. vanilluduft/dropar
1-2 msk. lucuma (má sleppa)
Örlítið salt

Heimagert marsipan:
75 gr. heslihnetur, malaðar fínt
1/8 tsk. salt
¼ dl. kókospálmasykur EÐA hlynsýróp EÐA xylatol
½ tsk. vanilludropar/duft
¼ dl. kókosolía EÐA kakósmjör
¼ - ½ tsk. möndludropar

Súkkulaðið:
Setið kókosolíudósina stutta stund í heitt vatn (40°C er passlegt) eða bræðið kakósmjörið yfir vatnsbaði. Hrærið síðan kókosolíunni/kakósmjörinu, kakóduftinu og sætunni saman í skál ásamt vanilluduftinu. Ef þið eigið lucum/mesquite þá hrærið smá útí. Þá er grunnblandan tilbúin.

Hippamarsipanið:
Setjið allt nema kókosolíu/kakósmjör í matvinnsluvélina og blandið vel saman. Bætið kókosolíu/kakósmjöri útí og klárið að blanda. Setjið fyllinguna inn í frysti í svona 10-15 mínútur til að hún geti stífnað.

Aðferð:
Setjið konfektformin inn í frysti í a.m.k. 30 – 60 mín. Hellið fljótandi súkkulaði í formin og veltið því upp eftir börmunum. Setjið síðan fyllinguna í formin og endið á að setja súkkulaði til að loka molanum.

Heimild: nlfi.is