Fara í efni

Næringaríkar súkkulaðihrákökur sem ilma

Súkkulaðikökur.
Næringaríkar súkkulaðihrákökur sem ilma

Súkkulaðikökur eru einfaldlega dýrðlegar og þeirra ætti að njóta til hins ýtrasta með reglulegu millibili. Ekki spillir að þessar tvær eru í hollari kantinum enda ekki bakaðar heldur frystar og teljast því til hráfæðis sem hljómar líka eitthvað svo vel!

Þá fyrri hef ég bakað lengi og prófað mig áfram með. Það nýjasta er að nota ilmkjarnaolíur og prófaði ég piparmyntu í hana þessa, bæði til að fá bragð og hollustu í kroppinn. Hin uppskriftin kemur frá Café Sigrúnu og sú inniheldur hvorki súkkulaði kakó, smjör, hveiti, hvítan sykur, flórsykur né rjóma og hananú. 

Báðar eru vítamín-, prótein- og kalkríkar auk þess að vera stútfullar af góðri fitu sem þakka má kókosolíunni, hnetunum og möndlunum og svo er lífræna kakóið og karobið ríkt af magnesíum og andoxunarefnum.

Lækningamáttur ilmkjarnaolía er magnaður en lykilatriði er að velja olíur sem eru 100% hreinar.  Þær búa yfir lifandi krafti plöntunnar sem getur haft afar jákvæð áhrif á okkur. Piparmyntuolíuna má taka inn en það á ekki við um allar ilmkjarnaolíur og best að ráðfæra sig við sérfræðing á því sviði áður.  Mentólið í piparmyntunni virkar bæði örvandi og hressandi í senn, hún er góð við meltingarvandamálum, höfuðverkjum, mígreni og þreyttum vöðvum.

Þrátt fyrir alla hollustuna eru þessar tvær uppskriftir alls ekki hitaeiningasnauðar en það er aukaatriði!

Ilmandi súkkulaðihrákaka að hætti Þóru

a

Botn
1 bolli döðlur
1 bolli fíkjur
2 bolli möndlur
1 bolli kókosmjöl
2-3 msk kókosolía
3 msk lífrænt kakó
2 msk karob
1 msk kakónibbur

Krem
1 dl kakó
1 dl kókosolía
160 ml kókosmjólk
½ dl agave sýróp
1 dropi 100% hrein piparmyntu ilmkjarnaolía.

Aðferð
Byrjað er á að fínsaxa bæði döðlur og fíkjur áður en öðrum hráefnum botnsins er blandað saman í matvinnsluvél og þrýst í mót.
Kókosolía brædd yfir vatnsbaði og blandað saman við kakó, kókosmjólk, sýróp og piparmyntuilmkjarnaolíu. Hellt yfir botninn og sett í frysti í ca. 1-2 tíma.
Gott að bera fram með rjóma eða ferskum ávöxtum.

Dökk súkkulaðihrákaka með ávöxtum að hætti Café Sigrún.

Uppskrift fengin af vef hun.is s