Fara í efni

Ris a‘la mande með Kokos kókosmjólk

Ris a´la Mande með kókósmjólk
Ris a´la Mande með kókósmjólk

Dásamlegur Ris a´la mande með Kokos kókósmjólk. 

Alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt. 

Hráefni: 

2¼ bolli Koko kókosmjólk hrein

1 bolli hvít eða hýðis hrísgrjón, ef þú notar hýðisgrjón þá er betra að láta þau liggja í bleyti um klukkutíma áður en soðin.

25 gr. Heilsu möndlur brotnar

1 ½ tsk Biona kókossykur

1 tsk sonnentor vanilluduft       

1 peli Ecomil möndlurjómi

2 bollar kirsuber frosin eða fersk eða þau ber sem þú villt

½ bolli vatn

Leiðbeiningar

Sjóðið hrísgrjónin í Kokos kókosmjólkinni, bætið 1 tsk af vanillu dufti í kókosmjólkinni. Sjóðið í 40 mínútur ef hýðisgrjón, eða eins og stendur á pakkningunni. Þegar 10 mín eru eftir bætið möndlurjómanum út í sjóðið aðeins lengur eða þar til allur vökvi er horfinn. Takið af hitanum og kælið.

Fyrir kirsuberja sósuna, setjið kirsuberin í litla pönnu með smá af vatni og kókossykrinum, leyfið því að sjóða saman þar til að blandan er orðin eins og sulta.

Blandið möndlu brotunum  út í grautinn, hellið heitri kirsuberja sósunni út á og njótið. 

Uppskrift fengið af Facebook síðu Heilsa

h