Fara í efni

Brakandi góðir Blómkáls “Buffalo vængir” og þeir eru án glúteins

Þessi uppskrift er víst algjört æði. Brakandi að utan og mjúkt að innan og svo einfalt að búa til.
Dásamlegir og hollir
Dásamlegir og hollir

Þessi uppskrift er víst algjört æði. Brakandi að utan og mjúkt að innan og svo einfalt að búa til.

Þetta er fullkomið helgar snakk, meðlæti með mat, forréttur eða til að taka með í partý.

Uppskriftin er fyrir fjóra.

Hráefni:

1 haus af blómkáli, skorinn í hæfilega litla bita

1 bolli af glútenlausu hveit

1 bolli vatn

1 tsk hvítlauskduft

½ tsk salt

1 msk bráðið smjör

2/3 bolli af sterkri sósu – getur notað þína uppáhalds

Leiðbeiningar:

Hitaðu ofninn á 220°.

Taktu meðalstóra skál og settu hveitið, vatn, hvítlauksduftið og salt. Hrærðu saman þangað til þetta er orðið mjúkt.

Skelltu nú blómkálsbitunum saman við og blandaðu þeim vel svo allir bitar séu huldir blöndunni.

Taktu nú blómkálsbitana og settu á plötu með smjörpappír.

Láttu bakast í 15 mínútur, snúðu þeim eftir 7 mínútur.

Á meðan þeir bakast, blandaðu þá smjörinu sem er bráðið og sterku sósunni í stóra skál, hrærðu þetta vel saman.

Þegar blómkálið hefur bakast, tekur þú það úr ofninum og skellir í sterku blönduna og blandar þeim vel saman við hana.

Settu blómkálsbitana aftur á plötuna og láttu eldast í 25 mínútur eða þangað til þeir eru orðnir brakandi góðir. Þeir eiga að vera crispy!

Eftir að þetta er komið úr ofninum skaltu leyfa þeim að kólna í 15 mínútur áður en þú berð þetta fram.

Svo notar þú uppáhalds ídýfuna þína með.

Njótið ~