Fara í efni

Spírur fara vel með rækjum, hér er einn einfaldur og góður rækjuforréttur.

Dásemdar réttur.
Dásamlegur forréttur
Dásamlegur forréttur

Dásemdar réttur.

Hráefni:

1 dl rækjur,

1/2 avócadó skorið í þunnar sneiðar ( má stappa líka ef vill)

Smá sítrónusafi, ca 1/4 úr sítrónu

Nokkur korn cayannepipar

Smá lúka klettasalat

Steinselja, söxuð

Smá lúka Brokkóli&smáraspírur

Leggið rækjurnar ( afþýddar) á disk, setið klettasalatið og spírurnar við hliðna, raðið avócadó sneiðunum fallega hjá, dreifið sítrónusafanum ofaná avócadið og rækjurnar, dreifið nokkrum kornum af cayanne pipar yfir avócadóið og síðan saxaðri steinselju yfir allt saman. Frískt og ljúfengt.

Photography: Áslaug Snorradóttir