Fara í efni

Frískandi chia vatn frá Eldhúsperlum

Þetta er einstaklega hressandi drykkur sem er stútfullur af chia-fræja hollustu.
Frískandi drykkur frá Eldhúsperlur.com
Frískandi drykkur frá Eldhúsperlur.com

Ég er mjög ginkeypt fyrir allskonar hollustu vörum sem ég trúi statt og stöðugt að virki og eigi eftir að tryggja mér góða heilsu það sem eftir er! ..Eitt af þessu eru Chia fræ. Ég keypti stóran poka af þeim fyrir löngu síðan og satt best að segja hefur gengið frekar hægt á blessaðan pokann. Ég er búin að prófa að búa til chia grauta en áferðin er bara ekki að heilla mig, svo það er ekkert sem er að fara að gerast hér á hverjum morgni. Ég rakst svo á dögunum á þetta snilldar chia vatn hjá henni Angelu vinkonu minni á Oh she glows og þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu spennt ég var að prófa. Síðan þá hef ég fengið mér nokkur glös og verð að segja að þetta er einstaklega hressandi drykkur sem er stútfullur af chia-fræja hollustu. Það er dásamlegt að byrja daginn á einu svona glasi og kreista safann úr einni sítrónu út í drykkinn. Angela bætti reyndar smá steviu-sætuefni út í drykkinn sem mætti vel gera. Mér fannst það samt algjör óþarfi.

Chia vatn:

  • 1 stórt vatnsglas (4 dl)
  • 1 msk chia fræ
  • Safi úr hálfri sítrónu.

Öllu blandað saman og látið standa í 5 mínútur. Hrært saman og drukkið strax. Þetta má líka blanda og setja í vatnsflösku og sötra á yfir daginn.

Birt í samstarfi við