Fara í efni

Hreyfing af mikilli ákefð og streita

Á meðan þjálfun af miklum krafti og ákefð getur verið tilvalin til að bæta líkamlega heilsu, þá er mikilvægt að hafa í huga að slík þjálfun er ef til vill ekki alltaf ákjósanlegasta leiðin ef mikil streita er til staðar í vinnu og/eða einkalífi.
Hreyfing af mikilli ákefð og streita

Á meðan þjálfun af miklum krafti og ákefð getur verið tilvalin til að bæta líkamlega heilsu,
þá er mikilvægt að hafa í huga að slík þjálfun er ef til vill ekki alltaf ákjósanlegasta leiðin ef mikil streita er til staðar í vinnu og/eða einkalífi. Niðurstöður rannsókna benda til að þjálfun af miðlungs- eða hárri ákefð valdi aukningu á kortisólmagni. Á móti benda niðurstöður rannsókna til að þjálfun af lágri ákefð (40%) sýni


ekki fram á markvissa hækkun á kortisólmagni, heldur lækki það (1,2).

Hér er önnur áhugaverð grein frá VivusHreyfing og álagstengdir stoðkerfisverkir

Ef hormónakerfið er í góðu jafnvægi og einstaklingur stundar erfiða þjálfun 2-3 sinnum
í viku þá verður hækkun á kortisóli í kjölfar þjálfunarinnar sem mun svo ganga til baka að
næturlagi og ekki hafa langvarandi áhrif. Einstaklingurinn mun upplifa vellíðan, aukna
einbeitingu og að vera orkumikill í kjölfar þjálfunarinnar.
Ef einstaklingur upplifir kvíða eða einhvers konar ójafnvægi í hormónakerfinu og stundar
erfiða þjálfun flesta daga vikunnar þá getur magn kortisóls haldist hátt. Það getur svo meðal
annars leitt af sér mikla þreytu, aukna matarlyst, erfiðleika með að léttast eða haldast í þyngd og meltingarfæravandamál.

Alla greinina má sjá hér:

VIVUS þjálfun 

Sara Lind Brynjólfsdóttir 

VIVUS Þjálfun 

 vivusmommur 

vivusthjalfun