Fara í efni

Litarefni í mat

Litarefni eru notuð í mat til að gera hann girnilegri. Svokölluð asó-litarefni hafa lengi verið umdeild og þau voru bönnuð á Íslandi til ársins 1997.
Afar litríkar kökur
Afar litríkar kökur

Litarefni eru notuð í mat til að gera hann girnilegri. Svokölluð asó-litarefni hafa lengi verið umdeild og þau voru bönnuð á Íslandi til ársins 1997. 

Efnin geta valdið ofnæmisviðbrögðum og einnig hefur leikið grunur á að efnin hefðu óæskileg áhrif á börn og tengsl væri á milli neyslu þeirra og ofvirkni.

Niðurstöður breskrar könnunar frá árinu 2007 þóttu staðfesta þetta og í kjölfarið ákvað Evrópusambandið að matvæli sem innihéldi þau 6 litarefni sem rannsökuð voru skyldu merkt með varúðarmerkingu. Neytendasamtökin hafa undrast hversu seint hefur gengið hjá íslenskum framleiðendum að skipta þessum efnum út. 

2012 var innleidd reglugerð hér á landi sem skyldar framleiðendur til að setja varúðarmerkingu innihaldi matvæli eitt hinna sex litarefna sem rannsökuð voru og mun þá standa: "heiti eða E-númer litarefnis eða litarefna“: getur/geta haft neikvæð áhrif á athafnasemi og eftirtekt barna.

Asó-litarefnin má sjá hér að neðan.  Efnin sem skylt er að merkja með varúðarmerkingu eru feitletruð. 
Tartrasín  (E102) 

Kínólíngult (E 104)

Sólsetursgult (E110) 

Asórúbín (E122) 

Amarant (E123)* 

Ponceau 4R (E124) 

Rautt 2G (E128)* 

Allúrarautt (E129) 

Briljant svart PN (E151) 

Brúnt FK (E154) 

Brúnt HT (E155) 

Litólrúbín BK (E180)*

einungis leyfilegt í takmörkuðu mæli í fáum tegundum matvæla

Fleira um þetta málefni má lesa HÉR