Fara í efni

Lof eða last ? Hugleiðing frá Guðna

Guðni með hugleiðingu dagsins.
Ljósmynd: Eran Yerushalmi
Ljósmynd: Eran Yerushalmi

Við hlaupum frá lasti og reynum að fá lof. Skömmina forðumst við og eltumst við frægð, frama og viðurkenningu. 

Vítahringur egósins og skortdýrsins hljómar svona: Lof eða last, ágóði eða tap, ánægja eða sársauki, frægð eða skömm. 
Ekkert af þessu veitir endanlega hamingju. 

Frelsið felst í að viðurkenna þá staðreynd að við erum sífellt að ráðstafa orkunni til að stað-festa eigin tilvist og viðhorf – frelsið felst í aðviðurkenna þessa staðreynd og taka sig þar með úr stöðu fórnarlambsins. 

Spurningin er aðeins hvort þú ert tilviljun eða slys – skapandi slys eða skapandi í vitund; skapari með skýran tilgang sem viljar heiminn og lífið til sín. Þú sleppur aldrei undan orkunni sem í þér býr – þegar þú velur að velja ekki velurðu slysið sem kemur; þú dregur til þín fólk eða aðstæður eftir því hvernig þinn innri vindur blæs, eftir orkunni sem í þér býr og á hvaða tíðni hún er. 

Ertu slys eða ertu í viljandi tilviljun?