Fara í efni

Ruggar þú þér á meðgöngunni?

Vissir þú að bandarískur sálfræðingur telur að ófrískar konur ættu að rugga sér, til dæmis í ruggustól, að minnsta kosti tvisvar á dag í 5-10 mínútur í senn?
Adamo hengirúmið
Adamo hengirúmið

Vissir þú að bandarískur sálfræðingur telur að ófrískar konur ættu að rugga sér, til dæmis í ruggustól, að minnsta kosti tvisvar á dag í 5-10 mínútur í senn?

Frá tíundu viku meðgöngunnar þroskast jafnvægisskyn hins ófædda barns og ruggandi hreyfing móðurinnar getur ýtt undir þennan þroska.

 

Eftir fæðingu

Mjúklegt rugg er ekki síður gagnlegt eftir að barn er komið í heiminn. Hæfilegt rugg vinnur á streitu barnsins, enda þykir öllum börnum gott að vera vaggað í ró. Hvort sem það er í ruggustól, rólu eða örmum aðstandanda njóta þau taktfastrar hreyfingarinnar sem losar um streitu, ótta og spennu sem börn finna fyrir allt frá fyrstu stundu í þessum heimi sem er þeim svo framandi.  Að auki örvar hreyfingin jafvægiskerfið sem hefur áhif á ýmsan heilaþroska, svo sem rýmisgreind og málþroska. Þegar barni er ruggað hreyfist vökvinn í innra eyra þess sem örvar jafnvægiskerfið. Meðan barnið róast og sofnar við mjúkt ruggið vinnur þetta kerfi í fullri virkni og sendir ýmsar upplýsingar til heilans.

a

Það er gagnlegt að rugga börnum og örva jafnvægisskynið allt frá fæðingu (eða fyrr!) og fram á skólaaldur, bæði þar sem það veitir öryggistilfinningu, slökun og þjálfun jafnvægiskerfisins sem er svo mikilvægt. Bandarískir barnalæknar hafa meðal annars komist að þeirri niðurstöðu að fyrirburum sem er ruggað í hengirúmi þrisvar á dag í hálftíma í senn þrífast betur en þeir sem ekki njóta slíkrar hreyfingar. Sálfræðingar og menntavísindafólk hefur einnig komist að raun um gagnsemi ruggs og telja að börn sem er reglulega ruggað í frumbernsku og fá markvissa örvun jafnvægiskerfisins fram á skólaaldur glíma síður við lærdómserfiðleika og eiga auðveldara með lestur og skrift.

Leyfðu þínu barni að vera vaggað í ró!

Adamo-ungbarnahengirúm – 100% lífræn og handgerð, hjálpa þér að rugga litla sólargeislanum þínum.

a

HÉR má sjá Facebook síðu Adamo.