Fara í efni

Til kvenna: Brjóstsviði eða hjartavandamál?

Oft hefur verið rætt um að konur fái stundum ekki dæmigerð einkenni frá hjarta heldur geti bakverkir og meltingaróþægindi verið vísbending um hjartavandamál. Einnig er algengt að brjóstsviða sé ruglað saman við einkenni frá hjarta.

Brjóstsviði er eitthvað sem við þekkjum mörg hver en það er sérstaklega mikilvægt fyrir konur að gera sér grein fyrir því að það er mögulegt að ruglast á brjóstsviða og hjartaverk, brjóstsviði er ekki lífshættulegt ástand en einkenni frá hjarta geta verið það.

Hvað hefur brjóstsviði að gera með hjartað? Í rauninni ekki neitt !

Þrátt fyrir nafnið brjóstsviði –sýru eða meltingartruflun- tengist hann vélinda. En vegna þess að vélinda og hjarta eru staðsett nálægt hvort öðru getur hvorutveggja valdið brjóstverk sem er ástæða þess að margir tengja brjóstsviða við hjartaöng (hjartaverk) og öfugt.

Hvað er brjóstsviði ?

Brjóstsviði er algengt ástand sem orsakast af sýru í maga sem leitar upp í vélindað. Þetta getur valdið brjóstverk sem stundum leiðir upp í háls, kverkar eða kjálka.

„Magi okkar er gerður fyrir sýru og þolir hana vel en það gerir vélindað ekki, „segir Mary Ann Bauman, MD, starfandi læknir og yfirmaður á kvennasviði hjá INTEGRIS Health Systems í Bandaríkjunum.

Ertu ekki viss um að það sem þú upplifir séu einkenni frá hjarta eða brjóstsviði?

Til að lesa þessa grein til enda á hjartalif.is smelltu þá HÉR.