Fara í efni

Að elska sig núna, hérna, svona - Guðni og sunnudagshugleiðingin

Að elska sig núna, hérna, svona - Guðni og sunnudagshugleiðingin

VIÐ GETUM EKKI FARIÐ FYRR EN VIÐ ERUM KOMIN

Hvað þýðir þessi setning? Að þegar við segjumst vilja breyta einhverju í eigin lífi – neysluvenjum, líkamanum eða andlegum viðhorfum – þá mætum við, fyllilega og í kærleika, inn í núverandi ástand. Þá finnum við mátt til að breyta því hvernig við rekum líf okkar.

Við elskum okkur núna, hérna, svona, eins og við erum.
Af hverju er þetta svona mikilvægt? Vegna þess að við endurheimtum mikið magn af orku með því að elska okkur eins og við erum, með því að strjúka breiðu mjaðmirnar og framstæða bumbuna, með því að klappa hrukkunum og gráu hárunum eða hverju því viðnámi sem við upplifum gagnvart útliti okkar. Vegna þess að þegar við mætum inn í augnablikið og auðsýnum sjálfum okkur þessa skilyrðislausu ást breytast öll vihorfin gagnvart lífinu.
Þá fáum við aftur aðgang að fullri orku okkar og skiljum muninn á því að langa og að verða. Hvernig hljómar samanburður á þessu tvennu?

Ég borða hollari mat og hreyfi mig meira vegna þess að ég vel að sýna líkama mínum virðingu.
Ég verð að borða hollari mat og hreyfa mig meira til að missa nokkur kíló því ég vil ekki vera svona feitur og ég vil líta vel út í sundskýlu.

Við skiljum muninn á því að verða og að vilja. Annað viðhorfið er afslappað og fullt af kærleika – hitt viðhorfið er fullt af spennu og skorti. Annað leiðir til velsældar – hitt leiðir til vansældar.