Fara í efni

Mangó-Tangó kjúklingur frá Birnumolum

Það er vel þekkt staðreynd að mangó og kjúklingur eiga frábæra samleið.
Mangó-Tangó kjúklingur frá Birnumolum

Það er vel þekkt staðreynd að mangó og kjúklingur eiga frábæra samleið.

Maður byrjar einfaldlega ósjálfrátt að brosa þegar minnst er á slíka dásemd.

Hér er á ferðinni Mangó-Tangó kjúklingur með austurlensku yfirbragði. Þú losnar ekkert auðveldlega við brosið eftir þessa máltíð 

 

Hráefni: 

1 bakki kjúklingabringur

1 msk sesamolía 

2 msk ólífuolía

3-4 cm engiferbútur

3 hvítlauksrif

1 tsk nigellu fræ (fást í Vietnam Market á Suðurlandsbraut)

1/2 tsk túrmerik

1 tsk chilliduft

Herbamare salt

1 venjulegur laukur

6 karrýlauf (fást í Vietnam Market, má sleppa)

2,5 dl vatn

3 tsk kjúklingakraftur

2 meðalstór og þroskuð mangó (eða 1 mangó + 1 grænt epli)

1 tómatur

1 grænt chilli

Steinselja 

Aðferð:

1) Skerið kjúkling í bita.

2) Pressið hvítlauk í skál og bætið sesamolíu, túrmeriki, fínt söxuðum engifer, nigellu fræjum, chillidufti og salti við. Hrærið saman og veltið kjúklingnum upp úr blöndunni. Látið standa í skál með plastfilmu yfir í ísskáp í 1-2 klst.

3) Skerið lauk og steikið hann upp úr ólífuolíunni þar til hann fer að mýkjast. 

4) Bætið kjúklingnum á pönnuna ásamt karrýlaufum og steikið þar til hann hefur tekið góðan lit og er nánast eldaður í gegn.

5) Skerið mangó, tómat og chilli. Bætið því út á pönnuna og hrærið öllu vel saman.

6) Hellið vatni út á pönnuna ásamt kjúklingakraftinum. Náið upp suðu og látið malla í 10-15 mínútur.

Skreytið með ferskri steinselju og berið fram með hýðishrísgrjónum og grænmeti.

Uppskrift frá birnumolar.com