Fara í efni

SÚPER GÓÐ PIZZA – Þessi er með eggjum, aspas og beikoni

Einföld og afar góð. Skemmtileg útgáfa af pizzu.
SÚPER GÓÐ PIZZA – Þessi er með eggjum, aspas og beikoni

Einföld, afar góð og skemmtileg útgáfa af pizzu.

Prufaðu þessa, má hafa í morgunmatinn og bera fram með dásamlegu salati.

Hráefni:

500 gr af pizza deigi – helst hafa það gróft (whole wheat)

2 lengjur af beikoni

¾ bolli af niðurskornum skallot lauk

500 gr af ferskum grænum aspas – snyrta hann og skera í litla bita

4 stór egg

¼ tsk af sjávar salti

¼ tsk af ferskum svörtum pipar

1 bolli af rifum cheddar osti

Leiðbeiningar:

Forhitið ofninn á 250 gráður.

Taktu stóra ofnplötu og skelltu á hana smjörpappír. Það má líka smyrja hana með smjöri eða olíu.

Rúllaðu nú úr deiginu, notaðu örlítið af hveiti á borðið svo deig festist ekki við.

Hafðu deig í svipaðri stærð og bökunarplatan.

Skelltu deigi í ofninn og látið bakast þar til það er stökkt að neðan. Þetta tekur um 8 mínútur.

Á meðan deig er í ofni skal steikja beikon yfir meðal  hita, beikon á að vera stökkt. Þurrkið svo beikon með eldhúspappír.

Setjið laukinn á pönnuna næst og hrærið oft, laukur á að verða brúnn. Þetta tekur um 2 mínútur.

Bætið aspas við og látið eldast í 2-3 mínútur, aspas á að verða mjúkur.

Dreifið nú grænmeti yfir pizzuna og endið á beikoni.

Þeytið egg, salt og pipar saman og hellið hægt yfir grænmetið, reynið að láta egg ekki renna á skorpuna.

Dreifið osti yfir allt saman.

Bakið þar til eggin eru tilbúin og ostur bráðinn. Þetta tekur 8-10 mínútur.

Fullkomin morgunverðarpizza.

Njótið vel!